Hlíðarvegur 45, 200 Kópavogur
134.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð í þríbýlishúsi
5 herb.
177 m2
134.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2016
Brunabótamat
81.350.000
Fasteignamat
106.750.000

5 herbergja efri hæðí í Suðurhlíðum Kópavogs í nýlegu húsi...alrými stofa/eldhús, 4 rúmgóð svefnherbergi og 2 baðherbergi

Lögheimili eignamiðlun, Hlíðasmára 2, Kópavogi og Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali, sími 845-7445 - [email protected], kynna í einkasölu:

Hlíðarveg 45, kópavogi

Nánar um eignina:
Stórglæsileg 177,5fm efri hæð í Suðurhlíðum Kópavogs. Húsið er nýlegt á vinsælum og rótgrónum stað í Kópavogi.  Eignin skiptist í svefnherbergisgang með tveimur baðherbergjum og eldhús og alrými með útgengt út á stórar skjólgóðar suður-svalir með glæsilegu útsýni.  Eina eignin á hæðinni.
Nánari lýsing:
Inngangur.
 Utanáliiggjandi steyptar tröppur liggja að sérinngangi íbúðarinnar.
Forstofa:  Góð forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Alrými: Eldhús - borðstofa - stofa - útgengt út á mjög rúmgóðar og fallegar og skjólgóðar suðursvalir með eftirsóknarverðu útsýni.
Eldhús:
 Eldhúsið er stílhreint og fallegt með nýlegri hvítri innréttingu og eyju sem hægt er að sitja við, spanhelluborði og bakarofni auk innbyggðrar uppþvottavélar. Gott skápapláss, efri og neðri skápar.
Borðstofa:  Inn af eldhúsi er borðstofa með parketi á gólfi og þaðan er útgengt út á svalir íbúðarinnar.
Stofa:  Stofan er björt og falleg og liggja eldhús, borðstofan og stofan saman.
Svefnherbergisgangur:  4 svefnherbergi, rúmgóð geymsla og 2 baðherbergi.
Svefnherbergi:  4 svefnherbergi, hjónaherbergi sem er mjög rúmgott með skápum á heilum vegg og tengingu við annað af tveimur baðherbergjum íbúðarinnar með baðkari/sturtu.  Önnur herbergi eru á sama gangi og eru líka mjög rúmgóð.  Í dag er eitt þeirra nýtt serm sjónvarpsherbergi.  Á sama gangi er annað baðherbergi með salerni, sturtu og þvottaaðstöðu fyrir enda gangsins og við hjónaherbergið.  Rúmgóð geymsla er á ganginum. 
Baðherbergi:  2 baðherbergi, bæði með salerni, annað með sturtu og hitt með baðkari/og sturtu.  Flísar á gólfum.
Bílastæði:  Stórt malbikað plan fyrir framan húsið
Umhverfi:  Húsið er nýlegt og stendur við rómaðar Suðuhlíðar Kópavogs í kyrrlátu umhverfi en stuttt í alla verslanir, þjónustu og skóla.
Geymsla:  Útigeymsla í sameign með hinum tveimur íbúðunum í húsinu
Gólfefni íbúðarinnar:  Parket, flísar og teppi.


Allar nánari upplýsingar veitir:  Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður, löggiltur fasteignasali í síma 845-7445 eða á netfangi:  [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4 - 0,8% af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir einkahlutafélög.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - Sjá nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 77.500 m.vsk.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.