Ólafia Ólafsdóttir lgf., og Lögheimili eignamiðlun kynna í einkasölu: Glæsilegt 2ja hæða parhús í byggingu við Malarskarð 8 í nýju hverfi í Skarðshlíð, Hafnarfirði. Húsið er alls 234,1m2, þar af íbúðarrými á tveimur hæðum alls 207,4m2 og 26,7m2 bílskúr á efri hæð. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og með álklæðningu í tveimur litum. Búið verður að leggja gólfhita og tengja við kistu. Hita- og rafmagns inntaksgjöld eru greidd. - Á NEÐRI HÆÐ ER MÖGULEIKI Á SÉR ÍBÚÐAREININGU MEÐ SÉR INNGANGI.
- EIGNIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Húsið verður afhent á byggingarstigi 4 samkvæmt ÍST 51:2001 þ.e. fullbúið að utan og með grófjafnaðri lóð. SJÁ NÁNAR Í SKILALÝSINGU SELJANDAVINSAMLEGAST BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA: 898 8242 EÐA [email protected]Ath. þrívíddarmyndir eru aðeins til viðmiðunar.
Skipting eignar samkvæmt teikningu: stærðir rýma miðast við innanmál.
EFRI HÆÐ: samanstendur af bílskúr, forstofu, herbergi, baðherbergi, og alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er úr borðstofu út á suðursvalir. Aðal inngangur hússins er á norður hlið.
Bílskúr: 26,7m
2 innbyggður bílskúr.
Forstofa: úr forstofu er aðgengi að bílskúr. Samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir fatahirslu í forstofu.
Herbergi: eitt herbergi á hæðinni og þar er gert ráð fyrir fatahirslu.
Baðherbergi: þar sem gert er ráð fyrir sturtu, salerni og innréttingu með handlaug.
Alrými: stofa, borðstofa og opið eldhús eru í opnu björtu rými. Gert er ráð fyrir veglegri eldhúsinnréttingu með eyju.
NEÐRI HÆÐ: samanstendur af þremur til fjórum svefnherbergjum, sjónvarpsholi, 2 baðherbergjum, þvottarými, eldhúskrók og anddyri. Útgengt er úr tveimur rýmum út á suðurlóð.
Frá efri hæð er innangengt í hluta eða alla neðri hæðina.
Á NEÐRI HÆÐ ER MÖGULEIKI Á SÉR ÍBÚÐAREININGU MEÐ SÉR INNGANGI. Sjónvarpshol: rúmgott sjónvarpshol í miðju rými.
Baðherbergi: 2 baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir innréttingu, salerni og sturtuklefa í báðum einingum.
Þvottarými: rúmgott þvotta / geymslurými þar sem gert er ráð fyrir innréttingu með vaski, þurrkara og þvottavél.
Svefnherbergi: þrjú rúmgóð herbergi ásamt mögulegu herbergi til viðbótar sem skráð er alrými á teikningu.
Nánari upplýsingar veitir Ólafía Ólafsdóttir lgf., í síma 8988242 eða [email protected]