*ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR*
*LAUS STRAX*
Lögheimili eignamiðlun kynnir 3ja herb. íbúð á 1. hæð, ásamt bílskúr. Eignin er samtals 92,6 fm. að meðtöldum innbyggðum bílskúr og geymslu. Útgengt er á svalir frá eldhúsi. Skipt var um gler í gluggum og sett ný svalahurð árið 2020. Sameiginleg stæði eru merkt að hluta til og eru tvö ómerkt ætluð fyrir hleðslu rafmagnsbíla. Fyrirhugað fasteignamat árið 2024 er 59,3 milljónir. Í næsta nágrenni er m.a. skóli, leikskóli, golfvöllur, kvikmyndahús, sundlaug, skíðabrekka, skemmtilegar gönguleiðir, Spöngin, verslun og ýmis þjónusta.
Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, svefnherbergisgang, tvö herbergi, baðherbergi, sérgeymslu og innbyggðan bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, [email protected]
Viltu frítt verðmat fyrir sölu? Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar?
Nánari lýsing: Anddyri, með fataskáp og fatahengi, er opið inn í stofu.
Stofa er opin inn í eldhús. Í
eldhúsi er hvít innrétting með viðarkönntum, ljósar flísar milli efri og neðri skápa, keramikhellur með viftu yfir, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur, útgengt á svalir og opið inn í stofu.
Svefnherbergisgangur er inn af stofu. Í
baðherbergi er lítil innrétting, baðkar með sturtustöng, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í þottainnréttingu með borði, skáp og hillum og eru flísar upp hluta veggja.
Tvö herbergi og bæði með fataskáp. Parket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem eru flísar.
Sérgeymsla er í kjallara. Innbyggður
bílskúr er með rafmagni, hita og rennandi vatni.
Hjólageymsla er í sameign.
Annað: Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er íbúð 70,7 fm. geymsla 5,1 fm. og bílskúr 16,8 fm., eða samtals 92,6 fm. Íbúðin hefur verið í útleigu frá nóvember, 2021 og bílskúrinn frá árinu 2015.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.