Ég hef mikinn áhuga á öllu sem tengist sköpun, stíleseringu og innanhússhönnun. Jafnframt er ég með diploma í innanhússhönnun frá The Interior Design Institute of San Francisco. Áhugi minn á híbýlum hefur dregið mig enn lengra og stunda ég nú nám til löggildingar fasteigna- og skipasala.
Eitt helsta áhugamál mitt utan vinnu er að dansa og hef ég verið þess heiðurs aðnjótandi að fá tækifæri til að kenna dans.
Ég hef einnig fengið það verkefni á Lögheimili að sinna markaðssetningarmálum á samfélagsmiðlum með eigendum stofunnar.
" class="worker-details__facebook" target="_blank">